Kata & Heiðrún & Ásta

...

16.02.2008 21:28:28 / Ásta

jaja

hellú.
jaa þessi síða er bara að deyja:/:P.. hihi
en jaa ætla bara að nefna nokkur atriði sem hefur gerst hjá mer undafarið:)
  • ég og elli áttum eins árs afmæli 9 feb:)
  • fórum í bústað með Lindu og Bjössa seinustu helgi .. það var fjör.. festum 2 bílinn og jaa það var doldið vesen útaf veðrinu:p.. hihi en það var gaur sem hjálpaði okkur :) hann bjargaði ferðinni:p.. þrumur og eldingar og læti þessa helgi:p sem jaa gerist ekki oft á íslandi
  • Ég, elli , linda og bjössi förum í þriggja vikna ferð til Rhodos í sumar:D.. sem er bara geggjað. þótt sumir eru ekki sátt með það (foreldrar)
  • geingur bara þokkalega í skólanum, þarf að fara suður að skoða Landspítalann í byrjun mars.. og þarf að borga allt! jejj:$
  • er buin að ákveða að fara í Nuddskólann þegar eg er búin með stúdentið her;)
  • svo fer eg að vinna á Hlíð í sumar:) kominn doldið leið á Norðlenska:P buin að vera þar nógu lengi
  • Helga systir mín átti litla stelpu  í desember:) algjört krútt:*
hihi veit ekki hvað ég á að seigja meira:P
mun bara sakna Hafliða þegar hann fer til Argentínu:(..
svo saknar maður Heiðrunar.. hun er alltof langt í burtu.. en rvk er miiiiiklu skárra en danmörk:).hehe
en jaa sí ja;*


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 14:22:48 / Kata

jájájá

æj verð að skifa eitthvað smá..  það er svo langt síðan!

 Voða lítið að gerast hjá mér..  er í prófum sko .. og svona til tilbreytingar ákvað ég að gera ekkert á meðan prófin eru, nema að læra.  Ég hef aldrei lært jafn mikið - og aldrei gengið svona illa í prófum:P  hehe vá, það er pirrandi! en jújú, næ samt vonandi öllu:D

 uu jú, það er eitthvað smá búið að gerast! John fékk bílpróf í síðustu viku, þannig að við ákváðum að kíkja á bílasölurnar, því það gengur ekki endalaust að vera á bílnum þeirra pabba og mömmu.  Þar sá hann golf sem hann langaði svo ótrúlega í ..  og við ákváðum að kaupa hann saman..  Í gær fór ég og bauð 450 000 í hann og fékk hann:D  og fór á honum heim! ekkert smá ánægð með hann.  Hann er svona dökk blár (mér finnst þannig bílar flottastir. 

En já, það er það eina!

en já, vonandi fer Ásta Fanney að fara að blogga:$

 Farin að læra fyrir sögu!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 14:46:57 / Heiðrún

Simablogg

Va... Eg er ad blogga ur simanum minum:-o tvilik tækni i dag... Eg sit upp i hallen i gamla skolanum minum og er ad horfa a handbolta... Eda horfa ...get nu ekki beint sagt thad... Kim, johana, camille, mads, vadfelth, straka kim og steffen eru herna lika... Thau eru ad tala um ost... Fanst thad ekkert gaman... En ja er hrædd um ad vid steffen komumst ekkert til tenereife... Af tvi steffen er ekkert buinn ad endurnyja vegabrefid hans... En eg nenni ekki aaaalveg ad blogga i simanum minum... Thannig vid ses

» 15 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 19:47:40 / Kata

uh, ömurlegt bílablogg

Ætlaði að setja þetta inn fyrir löngu, því nú eru þetta bara gamlar fréttir, en það skiptir ekki máli.  Betra að setja eitthvað ómerkilegt inn, heldur en ekki neitt! 

Fyrir svona tveimur vikum eða eitthvað, var ég á leiðinni í skólann í ensku (ojojojoj) og já ..  alla leiðina upp Þórunnarstrætið var ég að hugsa um eef það væri keyrt á mig...  hvað ég myndi gera og eitthvað og var alltaf að líta aftan við mig til að athuga hvort einhver væri of nálægt, en það var aldrei neinn.  Síðan var ég að stoppa á síðustu ljósunum hjá MA þegar það kemur svona risa högg á mig (minnti mig of mikið á það þegar ég keyrði á staurinn, bara ekki nærri því eins hart) ..  þetta var samt frekar mikið högg sko!  Meiddi mig í hálsinum og bakinu og útvarpið poppaðist út!  Og ég dreif mig út úr bílnum brjáluð fyrst en síðan sá ég að honum leið illa svo ég lét eins og ekkert væri að, þó að bíllinn minn væri klessa að aftan:( hann sagði strax bara ,,þú þarft ekki að hafa áhyggjur, þú ert í 100% rétti, ég var bara hálfviti að fylgjast ekki með og fikta bara í útvarpinu”  og síðan hringdi hann í lögguna og svona.  Hún kom og við sátum heillengi inni í löggubíl að gera skýrslu og eitthvað.   

Síðan var komið að því að athuga hvort bíllinn virkaði og ég settist inn og reyndi að keyra áfram, en ekkrt gerðist.  Það var af því að allt draslið var fast í dekkjunum, hann var semsagt verr farinn en við héldum:S En já, nenni ekki að segja frá meiru.  Bíllinn bara ónýtur og svona og ég keyri núna næstum því glænýjan santa fe jeppa sem var keyptur á 2,5 milljónir.  Vúhú.  Þarf samt að kaupa minn eigin bíl.

Var samt á nýjum yaris í tvo daga, sem ég fékk meðan verið var að gera tjónaskýrsluna mína.

 

Tveir klesstir bílar á þremur mánuðum.  Af hverju þarf ég að vera svona óheppin!?  

Núna í næstu viku er ég síðan að fara að kaupa mér nýjan bíl, þó ég hafi nú varla efni á því.  Vonandi reddast það samt.

 

Hmm, í næstu viku er líka árshátíðin í ma og ég er sem betur fer komin með kjól, sem ég fékk mikla hjálp frá sætu frænkum mínum að finna og næstum allt klárt, fyrir utan kannski skó.  Samt frekar stressuð fyrir þessu..  veit ekki af hverju.

 

 

img223/2926/picture117kc4.jpg

Almeran eftir staur 

 

 

img223/4308/picture080fd2.jpg

Toyotan þegar ég fékk hana

img231/219/mynd102mh8.jpg
Léleg símamynd eftir að keyrt var aftan á mig

Eins yaris og ég var á 8) 


Og santa fe eins og ég fer á í skólann núna, nema hann er gulllitaður

 

 

img229/3290/picture7su0.jpg
og síðan var Bjarki að senda mér þessa síðan í 1. bekk:';) 


» 19 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 23:05:41 / Ásta

yeah baby yeah:D

hahaha það er nu ekki margir sýnist mer sem vilja tjá sig um hvort strákar eiga að vera rakaðir eða ekki:p.. haha

en nuna er að nálgast prófinn hjá okkur sem er í VMA!... jejjj8|8|...eg er sko ekki tilbuin í þau strax.. en samt hlakka bara til að vera kominn í JÓLAFRÍ ;D.. 

Fer í 10 des í Ensku próf , 12 des í Líffæra og lífeðlisfræðipróf og svo 14 des í Hjúkrunarfræði  

fer bara í 3 próf ef eg næ að sleppa við stæ-prófið:D.. 

eg skil ekki það eru sumir komnir í jólafrí strax.. eg fer aldrei svona snemma í jólastemmarann.. æji þá verður maður ekkert spenntur á jólunum:p.. eða eg held það :D.

 æji kata kata kata er svo óheppin í umferðinni greyið mitt:p.. það var klesst aftan á hana og það var skemmt bílinn alveg.. æji:(... svo líka fjóla alveg utan við sig og klessti á annan bíl en það er verið að laga hann nuna , hún fær bara Polo á meðan:P

svo kemur Heiðrun um helgina:D.. jejjj:D..

Ég og elli vorum að horfa á Austin Powers Myndinar allar:p... ELSKA þessar myndir .. eg hlæ endalaust:haha:

eg verð bara að setja eina sæta mynd af folanum í lokinn:haha: 

 

veit ómerkilegt blogg:D..

 Kv Ásta :D.. sí ja!!!;*;*;*


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 20:27:34 / Heiðrún

okay..

okay.. ég vil að fólk fari að opna sig soldið eins og ég er vön að gera..

 

ég vil að þið kommentið um það með að strákar séu rakaðir að neðan ..

hvað er það sem að ykkur fynnst?.. stelpur .. viljiði hafa þá rakaða að neðan .. ? og strákar .. rakið þið ykkur að neðan eða syrtiði út svona lovely lítinn brúsk til að gera þetta aðeins snyrtilegra eða eruði bara algjörir apar?.. og safnið bara kuski þarna?

vinsamlegast kommetið undir nafni .. :D

ps. er buin að uppfæra allt í "um heiðrúnu"


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 23:05:18 / Heiðrún

ohoj

er buin að redda þessu .. myndirnar og það drasl er komið aftur ..

Lengi lifi svarthöfði!

 

ps.. það er komin ný skoðanakönnun

 

svarthöfði!


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 11:55:38 / Kata

blogg

Hvar eru myndirnar??

 

 

en já, er í skólanum núna..  eigum að vera að horfa á mynd í lífsleikni .. veit ekki alveg af hverju er ég er ekki að því:/  það er frekar heimskulegt, því ég á síðan að skrifa um hana:(  veit ekkert hvað er að gerast, nema, þetta er í afríku og það var að fæðast barn.

Er bara búin að vera að dunda mér í bekkjarsíðunni - www.annarh.bloggar.is  sem er já, bekkjarsíða besta bekks í heimi.  Annars já, ætlaði ég aftur að skrifa langt blogg, og aftur byrja ég og missi allan áhuga.  Þetta átti að bæta upp fyrir það síðasta, en það er víst ekki að gerast.

Bless


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 07:30:58 / Kata

..

ætlaði að skrifa langa sögu um þetta.. en ég nenni því ekki

 

Ég fór suður og kom svo heim


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 17:01:34 / Heiðrún

:S

hæhæ... seinasta föstudag... við vorum í partyi hjá stelpu sem heitir Eydís og vinnur með steffen .. hún á heima rétt hjá Devitos pizzustaðnum á laugarveginum. það var bara geðveikt sko :P.. en allavega fóru steffen og einhver náungi sem heitir óli sem við kynntumst í þessu partyi og Stefán sem er líka að vinna með Steffen niður á devitos til að éta pizzu.. þeir voru alveg að koma að staðnum þegar einn hvítur gaur kom hlaupandi fram hjá devitos niður laugarveginn. Svo komu nokkrir hvítir á eftir honum sem að voru að hlaupa með honum .. Síðan á eftir þeim kom bara mökkur af filipseyjungum og tælendingum á eftir þeim og fimm af þeim hlupu inn í bíl og fóru að taka upp hafnarboltakylfur upp í gluggann og ætluðu að keyra á eftir þeim. En svo tók einn upp skammbyssu með hljóðdeyfi og þeir brunuðu á eftir þeim :S hefði átt að fara með þeim og sjá þetta maður ..

en allavega klukkan 3 í gær um nóttina fórum ég og steffen á subway og fórum svo að kaupa okkur eitthvað að drekka á N1 og sáum búðar gaurinn koma að einhverjum náunga og sagdi honum að tæma vasana og hann gerði það og hann sýndi allt... en svo sagdi hann honum að  lyfta upp peysunni og hann gerði það .. þá hafði hann troðið inn á sig risa stórri svartri tösku :';) og hélt að það mundi ekki sjást:';) en gaurinn tók af honum töskuna og sagði honum að koma með sér.. en þá tók gaurinn svona friðarkerti og keypti það :P.. á meðan búðargaurinn var í simanum við lögregluna:P.. svo þegar hann var búinn að kaupa þetta friðarkerti ætlaði hann bara að fara.. en búðar kallinn fór á eftir honum .. svo fóru ég og steffen á eftir þeim og um leið og við komum út var enginn þarna ..eins og þeir höfðu hlupið eða eitthvað .. en já .. langaði bara að deila þessu með ykkur ;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 19:51:03 / Kata

!!

Ég er búin að ætla að reyna að blogga eitthvað hérna alveg heillengi.  Mér finnst bara svo erfitt að skrifa um eitthvað.  Um leið og ég byrja, þá fer bara allt út úr hausnum á mér og ég veit ekkert hvað ég ætla að tala um. 
Í gær ákvað núna ætti mér að takast þetta og náði í tölvuna og ætlaði að fara að blogga.  En nei, akkúrat þann dag hafði Heiðrún líka loksins sest niður og skrifað eitthvað.  Ég vildi ekki blogga yfir hana strax, svo ég ákvað að bíða í allavega einn dag. 

  
Það er svo mikið að gera í skólanum!  Held að ég geti þetta ekki.  Held að ég nái ekki að klára 2. bekk.  Æji ég veit að ég er svartsýn.  Þetta er bara svo erfitt og ég hef svo lítinn áhuga á því sem ég er að læra núna! 
Bekkurinn er annars mjög fínn.  Toppar ekki 1.B – en er samt mjög fínn og mér líkar bara vel við eiginlega alla, sem er mjög skrítið, því fólk fer svo ótrúlega í taugarnar á mér ..  mjög mikið af því allavega.
 

Ég er svo ótrúlega stressuð þessa dagana.  Er á eftir í eiginlega öllum fögunum.  Skil ekkert í náttúrufræðinni!!!  Vá hún er svo erfið! 
Síðan er það árshátíðin!  Oh, ég í kjól? :/  það hefur ekki gerst frá því ég var fimm ára:/  hvar á ég að fá kjól?!  Þarf að fara suður til þess held ég.  Lilja ætlar að hjálpa mér:)  

Ég og John erum búin að vera saman í meira en ár núna:D  Besta ár ævi minnar.  Hef aldrei í mínu lífi verið jafn hamingjusöm og þennan tíma með honum.  Gæti aldrei ímyndað mér betri kærasta.  Án gríns, ég heyri stelpur oft tala um eitthvað: ,,oh ég vildi að kærastinn minn myndi gera þetta eða segja hitt við mig”  John gerir þetta allt og segir þetta allt:D  Hann er líka ótrúlega duglegur núna.  Byrjaði í Norðleska fyrir innan við mánuði og er strax orðinn yfir pökkuninni:D  og síðan á hann afmæli í næsta mánuði og fær þá bílpróf og fer síðan í vma eftir áramót!
-
Umm.  Oh fór að borða og gleymdi öllu sem ég ætlaði að skrifa:(

 Hef voða fátt að tala um annað en skólann og vinnuna og ég veit hvað er ótrúlega leiðinlegt að lesa um það, svo skrollið smá niður og lesið Heiðrúnar:)  


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 14:37:30 / Heiðrún

jiiiiss

hææ :).. er bara búin að vera að vinna:/.. var í einhverju "partyi" hjá stelpu sem steffen er að vinna með um helgina.. vá hvað það var lame.., við sátum þarna bara eitthvað 7 manns og drukkum .. það eina skemmtilega var þegar strákarnir rökuðu hausinn á pétri.. hehe:P.. áður var hann með svona lubba:P..

en já.. það er alltaf eitthvað slúður í gangi í vinnunni maður.. er að fá frekar nóg af því .. en okey.. það er ekkert að gerast hjá mér.. fór með gísla í smá ökutúr í vinnunni á bmv .. 2 sæta.. geðveikur bíll :P.. og hann keyrði ekkert smá hratt. og ég var með kókglas.. og það skvettist geðveikt stór dropi beint í augað á mér .. þannig ég sá ekkert allt af ferðinni .. því augað mitt var fullt af kóki .. og hvað sem ég gerði .. þá fór kókið ekkert :/.. það var frekar óþægilegt..

 en jámm.. held það sé orðið víst að ég er að fara til kanaríeyja  með steffen, björk og dabba í janúar:P.. daginn eftir að við komum frá DK:Pförum meira að segja líka á tenerife,, þar sem ásta var:P..

 

 

http://verslun.heimsferdir.is/photos/8555PG1.jpg

http://verslun.heimsferdir.is/photos/8555PG2.jpg

http://verslun.heimsferdir.is/photos/8555PG4.jpg

http://verslun.heimsferdir.is/photos/8555PG5.jpg

http://verslun.heimsferdir.is/photos/8555PG6.jpg

 

El Duque er glæsilegt íbúðahótel á Costa Adeje, þar sem mikið er af nýlegum hótelum, sem liggur í framhaldi af Playa de las Americas svæðinu. Aðeins um 10 mínútna rólegur gangur á Playa Fañabé og Playa del Duque. Íbúðirnar eru í nokkrum byggingum sem liggja umhverfis tvö stór og mjög falleg sundlaugasvæði (ein sundlaug er upphituð;). Góð sólbaðsaðstaða, barnalaug, sundlaugarbar, veitingastaður, líkamsræktaraðstaða (sem kostar extra), sauna og íþróttaaðstaða. Inngangurinn er í gegnum inngang að lítilli verslunarmiðstöð þar sem er að finna veitingastaði á efri hæð og m.a. verslunina Intersport og stóran súpermarkað í kjallaranum. Íbúðirnar eru ýmist stúdíóíbúðir eða með 1 svefnherbergi og mjög vel útbúnar með eldhúsi með borðkrók, síma, gervihnattasjónvarpi, góðu baðherbergi og auk þess allar með svölum eða verönd. Allar byggingar eru 3ja hæða, lyftan gengur upp á aðra hæð og nokkrar brattar tröppur eru upp á þriðju hæðina. Stúdíó íbúðirnar eru í sér byggingum og íbúðirnar í öðrum. Stúdíó íbúðirnar eru afar rúmgóðar og rúma vel 3 fullorðna. El Duque er án efa eitt allra besta íbúðahótelið á Costa Adeje. Frábær kostur. ATH, hámark 3 fullorðnir inn á íbúð eða 3 fullorðnir og 1 barn / 2 fullorðnir og 2 börn


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 17:54:42 / Ásta

hohoho

hæææææ .. eg náði bóklega Ökuprófinu:D .... geggjað gott að vera buin með þetta dót:D svo er bara verklega eftir

 

en jaaa eg á afmæli sunnudaginn 14 okt:D.. löngu helgina.. en hun er nu ekkert voða löng hja mer og ella .. við erum að vinna sunnudaginn og svo líka a manudagin:/ jejj

 en jaa mig langar að komast suður! hitta helgu systir og nýju íbúðina þeirra kidda og svo heiðrúnu og steffen sem eg er ekki buin að hitta síðan þegar ef var að FARA til Tenerife:(... og svo Hitta auðvitað Hafliða ;)  ...

 

enn jaa gengur alveg ágætlega í skólanum og svona... hehe eg hef ekkert mikið annað að sejia;)... bææ;*


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 17:52:05 / Kata

laaangt síðan!

Já hæ.

Veit að það er laaangt síðan eitthvað gerðist á þessari síðu...  bara komin með svo leið á þessu ..  því ég hef aldrei neitt að segja.  Ekkert sérstakt að gerast hjá mér:) 

Skólinn byrjaði í dag ..  þekki eiginlega enga í bekknum, nema Tryggva, Bjarka, Jenný og Köru.  Er reyndar ótrúlega ánægð að þau séu með mér.  Öll svo ótrúlega fín!  Hitt fólkið veit ég ekkert um!

En eftir skólann fór ég og náði í John og við keyrðum á milli fyrirtækja til að finna vinnu fyrir hann, því að VMA er fullur og hann þarf að vinna fram að áramótum!  Það er eitthvað voða lítið laust. Ætli hann endi bara ekki í Hagkaup:S vantar fólk þar og mér heyrðist á þeim að hann fengi það.  Held að hann verði samt ekkert mjög ánægður, því þetta er ekki skemmtilegasta starf í heimi. 
Hey já, ég er komin á kassa.  Hætt í kælinum!  En þetta er jújú alveg fínt.

Næstu helgi erum við að fara suður.  Veit ekkert hvað við gerum, nema ég ÆTLA að hitta Hafliða!  Hef hitt hann einu sinni í sumar ..  bara um versló og hann stakk af eftir klukkutíma:( 

Hm, sama með Heiðrúnu og Steffen.  Verð að reyna að hitta þau, því ég hef líka bara hitt þau einu sinni eftir að þau fluttu:(  og já, húsið þeirra er of flott sko:o

En já, er í vinnunni ....  aaaað blogga.  Það hefur ekki gerst áður!  En það er bara af þvía ð ég hef ekkert að gera í þessar 12 mínútur sem ég fæ.  Vil ekki kaupa mér mat því að ég á svo lítinn pening:( 

En ókei, þetta er ömurlegt.  Þið þurfið ekkert að lesa þetta:P

Bæbæ

 

 

og hey já, ég og John verðum búin að vera saman í ár 29.!


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 19:05:39 / Heiðrún

skoðanakönnun

NÝ SKOÐANAKÖNNUN!

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan
Textabox
Steffen kemur aftur til isl
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1498 dögum
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti